Til þess að mæta kröfum neytenda hefur Veita hf., sem er nýtt nafn á sameinuðu fyrirtæki AM Kredit og Premium, ákveðið að fella niður öll seðilgjöld hjá greiðendum viðskiptavina sinna.

Umræða um seðilgjöld hefur verið áberandi síðustu mánuði og misseri, enda margir ósáttir við að greiða sérstakt gjald til þess að geta greitt reikninga sína. Þótt um tiltölulega lágar upphæðir sé að ræða í hvert skipti geta seðilgjöld numið tugum þúsunda á ári hverju fyrir heimilin í landinu. Með niðurfellingu seðilgjaldanna er Veita hf. að leggja sitt af mörkum til réttlátari innheimtuþjónustu hér á landi.

Veita byggir á grunni tveggja fyrirtækja, AM Kredit og Premium, sem sameinuð voru fyrir rúmu ári. Bæði fyrirtækin búa yfir áralangri reynslu af innheimtu, innanlands sem utan. Almenna Málflutningsstofan, sem síðar skiptist í AM Kredit og AM Praxis, á rætur að rekja allt til ársins 1941. Premium, sem stofnsett var árið 2001, var fyrsta fyrirtækið hér á landi sem bauð upp á fruminnheimtu. Með sameiningu fyrirtækjanna náðist töluverð rekstrarhagræðing og þjónusta við viðskiptavini fyrirtækjanna varð meiri og skilvirkari. Hjá Veitu hf. er boðið uppá faglega þjónustu á sviði frum-, milli- og löginnheimtu. Einnig býður fyrirtækið upp á fjármögnun viðskiptakrafna og kröfuvakt.

Meðal hluthafa Veitu hf. eru sparisjóðir, fyrirtæki og einstaklingar. Félagið starfar algerlega sjálfstætt.

Árangursrík og hagkvæm innheimtu- og greiðsluþjónusta

Við sérhæfum okkur í innheimtu útistandandi skulda með lágmarks kostnaði. Leiðarljósið er fagleg og skilvirk vinnubrögð og er innheimtu fé skilað hratt til kröfuhafa. Innheimtuferlið miðar að hámarksárangri en um leið er greiðendum sýnd tillitsemi og sanngirni. Við bjóðum árangursríka, persónulega og hagkvæma innheimtuþjónustu á öllum stigum, þ.e.

Nýr þjónustuvefur

  Við leggjum áherslu á góða þjónustu, skilvirkni, öryggi og að vera í farabroddi hvað varðar tæknilausnir í innheimtumálum. Til að mæta vaxandi kröfum viðskiptavina höfum við því endurhannað þjónustuvef okkar. Þangað geta viðskiptavinir á einfaldan, þægilegan og öruggan hátt sótt allar upplýsingar um innheimtumál sín hjá okkur.

Fréttir





Vefpóstur