Fáðu fjármagnið fyrr - fjármögnun veltufjármuna
Kaup sölureikninga (factoring) er þjónusta sem þekkst hefur lengi erlendis. Á undanförnum árum hefur þetta form fjármögnunar notið sívaxandi vinsælda enda sjá fyrirtæki þetta fyrir sér sem einfalda og fljótlega leið til að fjármagna vöxt sinn.
Veita hf hefur verið að þróa nýja leið við fjármögnun sölureikninga. Hún byggist á því að viðskiptavinur, sem gengið hefur frá samningi um þessa þjónustu, getur komið með sölureikninga sína til Premium sem skráir þá saman í kröfupakka sem boðinn er til sölu á Kröfutorgi. Kröfutorgið er lokaður net-uppboðsmarkaður þar sem kröfukaupar og kröfusalar geta komið saman og átt viðskipti sín á milli með sölureikninga. Kröfukauparnir eru allir fagfjárfestar, aðallega fjármálastofnanir.
Gerðar eru eðlilegar lágmarkskröfur til reikninganna með tilliti til gæða, og þeir reikningar sem ekki uppfylla gæðakröfur eru færðir í almenna innheimtu.
Þegar kröfupakkinn hefur verið fluttur inn á Kröfutorgið fara að berast í hann tilboð og á einhverjum tíma getur þú sem seljandi tekið því tilboði sem þér hentar og er þá kominn á bindandi samningur. Greitt er fyrir seldu reikningana fyrir hádegi næsta bankadag.
Yfirleitt er selt ákveðið hlutfall af kröfunum, eða einhversstaðar á bilinu 85 – 100% og er seljandinn í ábyrgð fyrir seldum kröfum. Lang flestar kröfurnar greiðast innan eðlilegs frests, en þær sem ekki hafa verið greiddar 60 – 75 dögum eftir eindaga kaupir seljandi til baka en Premium heldur samt áfram innheimtunni með óbreyttum hætti.
Við uppgjör á greiddum kröfum, þá fer greiðslan eftir því hve stórt hlutfall var selt. Hafi 90% verið selt, þá fær kaupandinn 90% af höfuðstól kröfunnar og dráttarvöxtum en seljandi krafnanna þau 10% sem á vantar. Sama gildir þegar kröfurnar eru endurkeyptar, kröfuútgefandi þarf að greiða það hlutfall sem hann seldi (85 – 100%) auk áfallinna dráttarvaxta af þeim hluta.
Reynslan hefur sýnt okkur að það er þörf fyrir svona fjármögnun hjá íslenskum fyrirtækjum. Þetta er tiltölulega einföld leið fyrir fyrirtæki í miklum vexti til að fjármagna vöxt sinn. Með þessum hætti eru þau ekki að taka upp lánalínur í banka sínum sem til dæmis mætti frekar nota til að fjármagna innkaup eða aðra liði sem tengjast beint tekjuöflun fyrirtækjanna.
Forsíða
Fréttir
Veita hf
Þjónusta
Kröfufjármögnun
Kostnaður
Sparnaður
Innheimtuferli
Kynning
Vefpóstur