Vandaðu valið - veldu metnaðarfullan samstarfsaðila!
Það er mikilvægt að vanda val á samstarfsaðila á sviði innheimtu- og greiðsluþjónustu. Veita leggur áherslu á að bjóða árangursríka, hagkvæma og umfram allt persónulega og góða þjónustu.
Kynntu þér því vandlega kosti þjónustu okkar áður en þú velur þér samstarfsaðila.
Meðal þess sem mælir með þjónustu er:
Traust innheimtufyrirtæki - áralöng reynsla.
Við leggjum áherslu á faglega og persónulega þjónustu. Við sérhæfum okkur í innheimtu á öllum stigum - allt frá fruminnheimtu til lögfræðiinnheimtu. Ánægðir viðskiptavinir til margra ára eru okkar bestu meðmælendur.
Innheimta kröfuhafa almennt að kostnaðarlausu.
Stærðarhagkvæmni, þjálfað starfsfólk og öflugur búnaður gerir okkur kleift að halda kostnaði við innheimtu í lágmarki. Skuldarar greiða því einnig lægri innheimtukostnað. Hjá okkur greiðir þú heldur engin stofn-, færslu- eða árgjöld.
Ráðgjöf í innheimtumálum.
Við bjóðum viðskiptavinum ráðgjöf í innheimtumálum. Starfsmenn okkar hafa mikla reynslu og þekkingu á innheimtumálum og hvernig setja má upp innheimtuferla sem henta aðstæðum á hverjum stað.
Kröfufjármögnun.
Við bjóðum viðskiptamönnum að fjármagna kröfur. Kröfuhafar eiga þá kost á að fá strax greitt út fé vegna krafna sem eru í innheimtu. Í stað þess að bíða eftir að innheimtan fari að bera árangur.
Traust upplýsingagjöf til kröfuhafa og greiðenda.
Markmið okkar er að bæði kröfuhafar og greiðendur hafi ávallt aðgang að áreiðanlegum upplýsingum um stöðu innheimtumála.
Betri þjónustuvefur kröfuhafa.
Kröfuhafar geta hvar og hvenær sem er fylgst með stöðu innheimtumála hjá frá heimasíðu okkar. Vefsamskiptin eru dulkóðuð og vottuð af Verisign til að tryggja fyllsta öryggi.
Rafræn tenging við viðskiptahugbúnað kröfuhafa.
Við getum tengst flestöllum viðskiptakerfum á markaðnum. Í rafrænum sendingum felst vinnuhagræði og tímasparnaður, auk þess sem komið er í veg fyrir innsláttarvillur þegar gögn eru flutt á milli kerfa. Einnig er sífellt algengara að tekið sé við vanskilakröfum beint úr innheimtukerfi banka og sparisjóða.
Greiða má greiðsluseðla í öllum bönkum og sparisjóðum.
Greiðsluseðlar eru þægilegir fyrir greiðendur. Sífellt fleiri notfæra sér einnig Netbanka til greiðslu reikninga. Tenging við Reiknistofu bankanna tryggir að skuldastaða er uppfærð daglega, þ.m.t. dráttarvextir. Kröfuhafar fá því vexti reiknaða til greiðsludags.
Öflugur hug- og vélbúnaður tryggir öruggi og skilvirkni.
Afar öflugur og sérhæfður innheimtuhugbúnaður auðveldar okkur að ná fram hagræði og skilvirkni við innheimtu viðskiptakrafna á öllum stigum. Þetta skilar sér í hagkvæmari innheimtu og betri innheimtuárangri.
Forsíða
Fréttir
Veita hf
Þjónusta
Kröfufjármögnun
Kynning
Öryggi
Sveigjanleiki
Öflugur þjónustuvefur
Kostir samstarfs
Vefpóstur