Árangursrík, persónuleg og hagkvæm innheimtu- og greiðsluþjónusta

Veita er þjónustufyrirtæki sem býður fjölbreytta innheimtu- og greiðsluþjónustu. Með viðskiptum við okkur geta viðskiptavinir bætt fjárstreymi, dregið úr áhættu og aukið hagræði í rekstri.

Við leggjum mikla áherslu góðan innheimtuárangur, persónulega þjónustu og að nýta möguleika upplýsingatækninnar og rafrænna viðskipta til að auka hagræði og ná betri árangri í innheimtuferlinu.

Milliinnheimtubréfum er fylgt eftir með símtölum og þannig komið á persónulegum samskiptum við greiðendur. Sanngjörn verðskrá ásamt persónulegu viðmóti hefur gert það að verkum að við höfum náð framúrskarandi árangri í innheimtu.

Starf okkar byggir á áratuga reynslu. Starfsfólk er með mikla reynslu af innheimtu- og lögfræðistörfum og margvíslega menntun, s.s. á sviði lögfræði, verkfræði, hugbúnaðargerðar og viðskipta.  




Vefpóstur