Veita hf sérhæfir sig í innheimtu útistandandi skulda með lágmarkskostnaði. Við leggjum metnað okkar í skilvirk og vönduð vinnubrögð og skilum innheimtu fé hratt til kröfuhafa.
Innheimtuferlið miðar að hámarksárangri um leið og greiðendum er sýnd tillitsemi og sanngirni.
Innheimtuferli okkar skiptist í fjögur meginstig:
Þessi innheimtustig mynda afar skilvirkt innheimtuferli frá útsendingu reiknings eða greiðsluseðils allt þar til krafa er greidd.
Viðskiptavinir okkar ráða ferðinni
Viðskiptavinir okkar ákveða hvaða þjónustu þeir vilja nýta sér og geta því sent okkur kröfur til innheimtu á hvaða stig sem er - ýmist stakar eða fleiri saman. Sumir velja heildarþjónustu en aðrir fá okkur til að sinna afmörkuðum þáttum í innheimtuferlinu t.d. bara milliinnheimtu og/eða lögfræðiinnheimtu.
Kröfur berast okkur með ýmsum hætti, t.d. rafrænt beint úr bókhaldskerfum viðskiptavina eða innheimtukerfum banka og sparisjóða. Aðrir skrá sjálfir kröfur sínar á vef okkar eða senda okkur kröfurnar einfaldlega á pappír. Við aðstoðum viðskiptavini okkar að finna þá leið sem best hentar þeim hverju sinni.